Innlent

Risaskjáir stóðust rokið

Tveir 20 fermetra skjávarpar sem vega samtals um tvö tonn, hafa verið settir upp á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þeim verður ætlað að birta upplýsingar um úrslit í keppni og sýna frá skemmtidagskrá sem verður í boði fyrir landsmótsgesti.

Landsmótið er fjölmennasta íþróttamót landsins. Gert er ráð fyrir um um 10-14 þúsund gestum, þar af um 2.500-3.500 erlendum gestum. Uppsetning á skjáunum er samvinnuverkefni Nýherja og Long ehf.

Skjáirnir eru staðsettir við sitt hvorn enda vallarins fyrir neðan áhorfendabrekku. Hver skjár byggir í raun á 10 einingum sem er hver um sig vegur 80 kg. Með aukabúnaði vega þeir samtals tvö tonn. Uppsetning á skjáunum tók einn og hálfan dag.

"Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa slíka skjái fyrir gesti því þeir veita upplýsingar um dagskrá og tryggja að sem flestir sjái hvað fram fer á reiðvellinum, ekki síst fyrir einkunnir og úrslit. Skjárinn gefur skemmtidagskránni einnig meira vægi og skemmtilegan blæ," segir Jóna Fanney Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna.

Þá hefur verið sett upp Renkus Heinz hljóðkerfi frá Nýherja á öllu svæðinu sem gerir mótshöldurum kleift að miðla upplýsingum til allra mótsgesta í áhorfendabrekkunni. Kostur kerfisins er sá að það gefur jafnan hljóðstyrk yfir alla brekkuna og tryggir að upplýsingar nái til mótsgesta. Þá verður kerfið einnig notað á markaðstorgi og í reiðhöllinni sem hýsir dansleiki yfir helgina. Um er að ræða sama hljóðkerfi og hefur verið notað í sjónvarpsþáttum X Factor og Idol Stjörnuleit.

Skjáirnir hristust nokkuð í nótt vegna óveðurs en stóðust áhlaupið enda búið að festa þá rækilega vel niður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×