Innlent

Furða sig á ákvörðun um að loka Kerinu fyrir rútum

Kerfélagið ehf., sem er eigandi Kersins í Grímsnesi, hefur ákveðið að takmarka aðgang að Kerinu við umferð almennings en stöðva skipulagðar hópferðir rútubíla frá og með 15. júlí.

Ástæða þessarar ákvörðunar er sögð sú að mikil ásókn á undanförnum árum hafi valdið náttúruspjöllum við Kerið sem nauðsynlegt sé að sporna við áður en í meira óefni er komið. Bent er á að langstærstur hluti ferðamanna komi í hópferðum sem rútufyrirtækin bjóði gegn gjaldi.

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa furðu sinni á ákvörðun Kerfélagsins í tilkynningu til fjölmiðla. Hún sé tekin eftir að ferðaskrifstofur neituðu að greiða gjald fyrir hvern farþega sem stoppar við Kerið.

Segja samtökin að í náttúruverndarlögum sé kveðið á um að að almenningi sé heimil för um landið í lögmætum tilgangi. Í öðru lagi sé undarlegt að mismuna ferðamönnum eftir því hvort þeir eru í rútu eða á einkabíl. Þá hafi Vegagerðin og Ferðamálastofa greitt fyrir bílastæði, göngustíga og skilti við Kerið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×