Kanna hvort eitrað hafi verið fyrir lögmanni Khodorkovskys 14. október 2008 22:37 Míkhaíl Khodorkovsky situr í fangelsi fyrir skattsvik en hann hefur alla tíð haldið því fram að ákærur á hendur honum séu runnar undan rifjum stjórnvalda í Kreml.
Lögregla í Frakklandi hefur hafið rannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir þekktum rússneskum lögfræðingi í Strassborg á mánudag. Karina Moskalenko veiktist eftir að hún fann efni sem líkist kvikasilfri í bíl sínum og þá þurftu börn hennar einnig að leita læknis vegna hausverkja og ógleði eftir að hafa verið í bílnum. Ekki mun hafa verið nóg af efninu í bílnum til þess að stofna lífi þeirra í hættu en rannsókn málsins er engu að síður haldið áfram. Moskalenko er þekkt í heimalandi sínu fyrir að hafa unnið fyrir andstæðinga stjórnvalda í Kreml, þar á meðal olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovsky og fjölskyldu blaðakonunnar fyrrverandi, Önnu Poliltkvoskayu, sem myrt var í Moskvu. Moskalenko átti einmitt að vera viðstödd yfirheyrslur yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um að hafa myrt Politkovskayu í Moskvu á morgun en kemst ekki vegna veikindanna. Einn af samstarfsmönnum Moskalenko telur að hér hafi verið á ferðinni tilraun til þess að fæla hana frá málinu.Mál Moskalenko minnir um margt á mál Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara í Rússlandi, sem lést af völdum eitrunar í Bretlandi. Bresk stjórnvöld grunar annan fyrrverandi njósnara, Andrei Lugovoi, um morðið en hann hefur neitað aðild að því og þá hafa rússnesk stjórnvöld neitað að framselja hann.
Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Einum úr áhöfninni bjargað Erlent „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Fleiri fréttir Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Blaðamanni rænt í Írak Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Telur að múslimar geti ekki verið Svíar „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Banna íbúðakaup til öskugeymslu Vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi Þýskaland Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Telja réttarmorð framið á hjúkrunarfræðingi sem var dæmdur fyrir barnamorð Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent