Ráðstafanir gerðar fyrir utanríkisviðskipti 8. október 2008 16:03
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi gert ráðstafanir þannig að erlend viðskipti íslenskra fyrirtækja geti farið fram á eðlilegan hátt. Á blaðamannafundi Iðnó í dag kom fram að hnökrar hefðu verið á þessum viðskiptum en Seðlabankanum hefði verið falið að leysa hnúta og gefa út ábyrgðaryfirlýsingar til viðbótar við yfirlýsingum viðskiptabanka.Geir fór yfir atburði síðustu daga og sagði þá hafa verið örlagaríka fyrir Íslendinga. Hann vissi að margir sem hlustuðu á hann væru óttaslegnir og fullir óvissu um það sem fram undan væri. Þetta væri skiljanlegt vegna þess að efnahagslífið og samfélagið allt gengi í gengum meiri breytingar en dæmi séu um í seinni tíð. Það megi ekki gleyma því að þegar rykið sest muni íslenska þjóðarbúið vera miklu sterkara en áður og vonandi eðlilegra og heilbrigðara. Á meðan á þessu stæði yrði íslenska þjóðin hins vegar að standa saman og standa styrkum fótum.Þá fór hann yfir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Glitni og sagði það ferli hafa gengið hratt og snuðrulaust fyrir sig. Viðskiptavinir gætu í allan dag geta gengið að venjulegri bankaþjónustu eins og gert hefði verið ráðherra. Ítrekaði Geir að innistæður í bönkum og sparisjóðum væru fullkomlega tryggar.Þá vísaði Geir til yfirlýsingar sem hann hefði sent frá sér í framhaldi af óvissuástandi eftir að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Alistair Darling, fjármálaráðherra hefðu sagst myndu fara í mál við ríkið vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi. Ríkisstjórnir landanna væru að meta stöðuna og leita viðunandi lausn fyrir alla. Þá sagði Geir að góðar líkur væru á að eignir Landsbankans dygðu til að standa undir stærstum hluta Icesave-innistæða.Þá sagði Geir að samtöl hefðu átt sér stað milli embættismanna Bretlands og Íslands og sagði Geir mikivægt að unnið yrði að lausn en að skeytasendingar yrðu ekki fleiri.Þá sagði hann hafa borið á hnökrum á erlndum viðskiptum ísklenskra fyrirtækja. Seðlabankanum hefði verið falið að gera ráðstafanir að öll viðskipti gætu farið fram með eðlilegum hætti. Gengið yrði frá ábyrgðaryfirlýsingum til viðbótar yfirlýsingum viðskiptabanka. Seðlabankinn hefði jafnframt og myndi tryggja að strax eftir helgi yrðu öll venjuleg bankaviðskipti milli landa komin í eðlilegt horf. Verið væri að semja við erlenda banka um það og það væri mjög mikilvægt.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Sjá meira