Innlent

Ísland hækkar á lista yfir samkeppnishæfni

Þrátt fyrir umrót í viðskiptalífinu undanfarið ár hækkar Ísland á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni þjóða úr 23. sæti 2007-2008 í 20. sæti 2008-2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Bandaríkjamenn eru enn efstir á listanum en næst koma Sviss, Danmörk, Svíþjóð og Singapúr. Bretland fellur af topp tíu listanum vegna veikingar markaða þar í landi og er núna í 12. sæti. Alþjóðaefnahagsráðið birtir árlega samkeppnishæfnisvísitölu sem byggist á opinberum tölfræðiupplýsingum og viðhorfskönnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífi 134 landa. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins á Íslandi og sá um framkvæmd könnunarinnar síðastliðið vor.

„Styrkleikar Íslands felast meðal annars í sterkum stofnunum (6. sæti), heilsu og grunnmenntun (2. sæti), framhaldsmenntun (4. sæti), tækni (6. sæti) og skilvirkni vinnumarkaðarins (6. sæti), en veikleikar Íslands eru breyturnar þjóðhagslegur stöðugleiki (56. sæti) og markaðsstærð (118. sæti). Í skýrslu World Economic Forum kemur fram að aðgangur að fjármögnun og verðbólga valda mestum vandkvæðum í viðskiptum á Íslandi," segir í tilkynningu Nýsköpunarmiðstöð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×