Innlent

Verkfæri í óskilum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eiganda verkfæranna á meðfylgjandi mynd. Sá hinn sami getur vitjað þeirra á lögreglustöðinni við Hverfisgötu gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi.

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Grafarvogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi, en í nágrenni hans er Engjaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×