Helst hætta á hryðjuverkum við sendiráð 1. júlí 2008 17:16
Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur að möguleg skotmörk hryðjuverkamanna á Íslandi geti verið ferðamenn eða sendiráð erlendra ríkja. Árás á erlend fyrirtæki á Íslandi gæti einnig í huga hryðjuverkamanna falið í sér vel heppnaða atlögu að hagsmunum einhvers ríkis sem þeir hatist við. Þá sé unnt að valda mjög alvarlegum áföllum með árásum á tölvukerfi t.d veitustofnana, fjármálafyrirtækja og stjórnarráðsins. Samkvæmt mati greiningardeildar er hætta á hryðjuverkum hér á landi lítil og ekki séu fyrirliggjandi sérstakar upplýsingar um að verið sé að skipuleggja eða undirbúa hryðjuverkaaðgerðir gegn skotmörkum eða viðburðum hérlendis. Í skýrslu greiningardeildarinnar um hættu á hryðjuverkum hér á landi segir að aukin alþjóðleg hryðjuverkastarfsemi og greiðari för fólks milli landa hafi í för með sér aukna hættu á að hérlendis verði framin hryðjuverk eða fram fari undirbúningur hryðjuverkaárása í öðrum löndum. Ísland og íslenskir hagsmunir gætu orðið fyrir alvarlegum skaða ef hérlendis færi fram undirbúningur að hryðjuverki í öðru landi eða rekja mætti árásir til þess að íslensk stjórnvöld hefðu ekki sinnt alþjóðlegum skuldbindingum um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi. Bent er á fjölda hryðjuverkaárása frá því að árásirnar á Bandaríkin dundu yfir árið 2001 og sömuleiðis að komið hafi verið í veg fyrir fjölda hryðjuverka á undanförnum árum svo sem í Bretlandi, Danmörku og Þýskalandi. „Ljóst er að hryðjuverk geta átt sér stað á Íslandi og einnig undirbúningur og skipulag hryðjuverka gagnvart öðrum löndum," segir greiningardeildin í skýrslunni.
Tengdar fréttir Hætta á hryðjuverkum lítil - aukin umsvif erlendra glæpahópa Hætta á hryðjuverkum hér á landi er lítil en umsvif skipulagðra erlendra glæpahópa eru vaxandi hér á landi samkvæmt mati greiningardeildar ríkislögreglustjóra. 1. júlí 2008 13:48 Menn fluttir inn til landsins aðeins til að fremja afbrot Greiningardeild Ríkislögreglusstjóra segir að fyrir liggi að austur-evrópskir ríkisborgarar séu „fluttir inn“ hingað til lands í þeim einum tilgangi að fremja afbrot. Vísbendingar séu um að starfsemi skipulagðra erlendra glæpahópa sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað. 1. júlí 2008 14:35 Grunur um starfsemi mansalshringa hér á landi Vísbendingar eru um að erlendir aðilar komi í auknum mæli að skipulögðu vændi á Íslandi og grunur leikur á að sú starfsemi tengist mansalshringum einkum í Austur-Evrópu. 1. júlí 2008 16:41 Fáfnir í formlegum tengslum við alþjóðleg glæpasamtök Íslenski mótorhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur stofnað til formlegra tengsla við skipulögð alþjóðleg glæpasamtök með því að gerast stuðningsklúbbur Hells Angels vélhjólasamtakanna. Svo segir í nýrri skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. 1. júlí 2008 15:13 Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Hætta á hryðjuverkum lítil - aukin umsvif erlendra glæpahópa Hætta á hryðjuverkum hér á landi er lítil en umsvif skipulagðra erlendra glæpahópa eru vaxandi hér á landi samkvæmt mati greiningardeildar ríkislögreglustjóra. 1. júlí 2008 13:48
Menn fluttir inn til landsins aðeins til að fremja afbrot Greiningardeild Ríkislögreglusstjóra segir að fyrir liggi að austur-evrópskir ríkisborgarar séu „fluttir inn“ hingað til lands í þeim einum tilgangi að fremja afbrot. Vísbendingar séu um að starfsemi skipulagðra erlendra glæpahópa sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað. 1. júlí 2008 14:35
Grunur um starfsemi mansalshringa hér á landi Vísbendingar eru um að erlendir aðilar komi í auknum mæli að skipulögðu vændi á Íslandi og grunur leikur á að sú starfsemi tengist mansalshringum einkum í Austur-Evrópu. 1. júlí 2008 16:41
Fáfnir í formlegum tengslum við alþjóðleg glæpasamtök Íslenski mótorhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur stofnað til formlegra tengsla við skipulögð alþjóðleg glæpasamtök með því að gerast stuðningsklúbbur Hells Angels vélhjólasamtakanna. Svo segir í nýrri skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra um mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. 1. júlí 2008 15:13