Dæmigerð viðbrögð við jákvæðri athygli á náttúruvernd 1. júlí 2008 14:08 Birgitta Jónsdóttir
Í Fréttablaðinu í dag birtist frétt um að ferðamenn laðist að Kárahnjúkum og að stíflan væri orðin að vinsælum ferðamannastað. Ein af rökum náttúruverndarsinna gegn stíflunni var hins vegar að hún spillti hinni hreinu ímynd sem Ísland hefði út á við. Birgitta Jónsdóttir, náttúruverndarsinni taldi fréttina dæmigerð neikvæð viðbrögð gegn hinni jákvæðu umræðu sem skapast hefur í kringum Náttúrutónleikana sem voru á laugardaginn. ,,Auðvitað er fínt að fólk fari á þetta svæði en það er einnig hægt að laða fólk þangað á annan hátt," sagði Birgitta í samtali við Vísi í dag. Hún taldi einnig dæmigerð rök fyrir virkjunum að í lagi væri að farga þeim svæðum sem fásótt væru. Að hennar mati væri svæði jafndýrmæt þó ferðamannafjöldi þangað væri ekki mikill og enn fremur þyrfti að huga vel að þeim viðkvæmu náttúruperlum sem væru fjölsóttar af ferðamönnum. ,,Það er sorglegt að við höldum að við séum ekki til nema einhverjir útlendingar viti af okkur," bætti Birgitta við. Birgitta sagðist setja spurningamerki við tímasetninguna á þessari frétt og sagðist finna fyrir því að oft kæmi alda af neikvæðum fréttum þegar eitthvað jákvætt væri gert til að vekja athygli á náttúrunni. Hún hrósaði þeim sem stóðu að tónleikunum á laugardaginn og taldi þá umræðu hafa vakið athygli á öllum þeim náttúruperlum sem stæði til að virkja. ,,Það er nóg af stíflum um allan heim til að skoða," sagði Birgitta og nefndi að hún þekkti margt fólk sem ætti sér þann draum heitastan að koma til Íslands til þess að upplifa náttúruna en ekki til þess að skoða einhverjar virkjanir.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Richard Attenborough allur Erlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Fleiri fréttir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Sjá meira