Uppbyggingin í Írak kostnaðarsamt klúður 15. desember 2008 06:00
Uppbygging Bandaríkjamanna í Írak misheppnaðist vegna þess að engin stofnun ríkisstjórnarinnar bar ábyrgð á henni. Deilur milli skriffinna, vaxandi ofbeldi og vanþekking á íröksku samfélagi höfðu einnig áhrif á að uppbyggingin klúðraðist. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um uppbygginguna sem gerð var fyrir Bandaríkjastjórn og dagblaðið New York Times birti í gær. Í skýrslunni kemur fram að Bandaríkjastjórn hafi ekki verið nægilega vel undirbúin til að framkvæma þau verkefni sem uppbyggingin fól í sér. Verkefnið í heild hafi verið illa undirbúið og oft hafi stórar ákvarðanir verið teknar á mjög stuttum tíma. Dæmi er tekið af því að embættismanni hafi verið gefinn fjögurra klukkustunda frestur til að ákveða hversu mikið af vegum þyrfti að opna og laga. Mat þessa embættismanns hafi svo farið beint inn í áætlun um málið. Þá er sagt að bandarísk stjórnvöld hafi fyrir innrásina verið treg til að eyða peningum í uppbyggingu annars lands. 117 milljörðum hafi þó verið eytt síðan þá og þar af hafi 50 milljarðar komið beint úr vasa skattgreiðenda. Peningarnir hafi þó nánast aðeins farið í að lagfæra það sem var eyðilagt í innrásinni sjálfri. Í skýrslunni segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, að á mánuðunum eftir innrásina hafi sífellt verið gefnar rangar upplýsingar um fjölda í öryggissveitum. Tölurnar hafi verið ýktar um tutt-ugu þúsund manns í hverri viku. Einnig kemur fram í skýrslunni að nú, fimm árum eftir innrásina í Írak, hafi stjórnvöld hvorki fastmótaða stefnu né getu til þess að takast á við svo stórt verkefni sem uppbyggingin sé. Skýrslan er unnin af bandarískri eftirlitsstofnun með uppbygginginunni í Írak, sem leidd er af repúblikanum Stuart W. Bowen. Bowen hefur undanfarin fimm ár fylgst með uppbyggingunni í Írak. Skýrslan er byggð á um 500 nýjum viðtölum og yfir 600 rannsóknum sem hafa verið gerðar síðustu árin. Bowen vill ekki tjá sig um skýrsluna, sem á að kynna fyrir þingnefnd í byrjun febrúar á næsta ári. George W. Bush, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Það verður væntanlega síðasta opinbera heimsókn hans þangað. Barack Obama hefur lofað að draga herlið Bandaríkjanna út úr landinu.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Sjá meira