Úldinn hákarl notaður til að kynna Ísland 15. desember 2008 05:00 Kjaftfori kokkurinn Gordon Ramsey varð kjaftstopp og ældi síðan þegar hann smakkaði hákarl, verkaðan upp á íslenskan máta. „
Ég hef ekki heyrt af þessu áður en þetta er sniðugt. Íslendingar hafa náttúrulega alltaf verið duglegir við að kynna þorrablótin en að það sé markaðssett svona er einhver nýlunda," segir Ottó Guðmundsson, starfsmaður í Múlakaffi. Erlendar ferðaskrifstofur eru teknar til við að kynna skondnar og skemmtilegar hliðar á Íslandi. Ekki nema von því þeir eru ófáir sem spá því að Ísland verði einn „heitasti" áfangastaður erlendra ferðamanna á næsta ári. Á vefsíðu Times er því spáð að sprenging verði í komu breskra ferðamanna til landsins enda hafi verð lækkað um allt að því helming.Þorrablót virðast vera nýjasta markaðstækifærið.Icelandair ætlar samkvæmt vefsíðu Times að bjóða upp á lækkað verð til Íslands meðan á þorranum stendur en það ku vera milli 25. janúar og 23. febrúar. Skorað er á þá sem telja sig hafa sterkan maga að prófa þorrablót.Á bresku ferðavefsíðunum Opodo.co.uk og justtheflight.co.uk má finna kynningu á þessum sér-íslenska sið; að hesthúsa súra hrútspunga, sviðasultu og -kjamma. Múlakaffi og Kaffi Reykjavík eru kynnt til sögunnar sem fánaberar þessarar íslensku matargerðar en þó vekur mesta athygli að kjaftfori kokkurinn Gordon Ram-say er notaður sem kynningartrikk. „Smakkaðu á hákarlinum sem fékk Gordon Ramsay til að æla." Eflaust eiga þó einhverjir bara eftir að kynna sér næturlífið því hákarlinn er kynntur sem „rotten shark" sem myndi útleggjast á hinu ylhýra: úldinn hákarl. - fgg
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira