Erlent

Mótmæltu jólasveinabanni í Sarajevo

MYND/AP

Hundruð manna komu saman í miðborg Sarajevo í Bosníu í dag til þess að mótmæla þeirri ákvörðun borgaryfirvalda að banna heimsóknir jólasveina á leikskóla.

Meirihluti íbúa í borginni nú eru múslímar og í íslam er engan jólasvein að finna. Rík hefð er hins vegar fyrir því í borginni að jólasveinninn, eða Frostfaðirinn eins og hann nefnist í Bosníu, heimsæki börn á leikskóla og gefi þeim gjafir á milli jóla og nýárs. Í þessa hefð vilja sumir borgarbúar halda og því var efnt til mótmælanna. Mætti fólk með flautur og í jólasveinabúningum og með jólasveinahúfur til þess að leggja áherslu á kröfur sínar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×