Innlent

Skilur óánægju vegna ummæla um flugeldasölu

Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.
Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.

Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, skilur óánægju Kristins Ólafssonar, framkvæmdastjóra Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, með þau orð sem Jón lét falla í morgun þegar hann hvatti fólk til að kaupa ekki flugelda.

Jón var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi í morgun og þar hvatti hann almenning til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum væri fólk að henda peningum. Kristinn sagði í samtali við Vísi að orð Jóns væru kjánaleg og út í hött. Nær hefði verið ef þingmaðurinn hefði stungið upp á að fólk keypti minna af áfengi um áramótin.

,,Ég get vel skilið það að aðili sem hefur tekjur af því að selja flugelda skuli vera á móti því að fólki sé ráðlagt að spara við sig flugeldakaup," segir Jón í pistli á heimasíðu sinni.

Af gefnu tilefni tekur Jón fram að hann telur björgunarsveitir og slysavarnarfélög vinna nauðsynlegt og óeigingjarnt starf. Hið opinbera hafi ekki stutt nægjanlega vel við félögin. Engu að síður telur Jón heppilegra að aðrar fjáröflunarleiðir verði skoðaðar en flugeldasala.

,,Í dæmaskyni fyrir Kristinn og félaga hans þá bendi ég á að ég starfa innan SÁÁ og legg þeim samtökum það til sem ég get og er beðinn um. Það geri ég af því að ég tel SÁÁ vinna lífsnauðsynlegt starf. Það breytir þó ekki því að ég get ekki samþykkt eða talið það heppilegt að SÁÁ hafi tekjur af spilafíkn. Mér finnst það óeðlilegt. Hins vegar tek ég undir það sparnaðarráð Kristins að fólk spari við sig áfengiskaup," segir þingmaðurinn.

Pistil Jóns Magnússonar er hægt að lesa hér.




Tengdar fréttir

Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda

Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum. Hann var gestur Sigurjóns Egilssonar í þættinum Sprengjusandi í morgun þar sem meðal annars rætt um hvernig almenningur getur sparað. Auk þess talaði Jón fyrir því að fólk minnkaði gosdrykkju sína. Jón var eitt sinn formaður Neytendasamtakanna.

Ummæli Jóns um flugelda út í hött

Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segir að ummæli Jóns Magnússonar, þingflokksformanns Frjálslynda flokksins, um að fólk eigi að spara og sleppa því að kaupa flugelda séu kjánaleg og út í hött.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×