Skilur óánægju vegna ummæla um flugeldasölu 28. desember 2008 20:45 Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.
Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, skilur óánægju Kristins Ólafssonar, framkvæmdastjóra Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, með þau orð sem Jón lét falla í morgun þegar hann hvatti fólk til að kaupa ekki flugelda. Jón var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi í morgun og þar hvatti hann almenning til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum væri fólk að henda peningum. Kristinn sagði í samtali við Vísi að orð Jóns væru kjánaleg og út í hött. Nær hefði verið ef þingmaðurinn hefði stungið upp á að fólk keypti minna af áfengi um áramótin. ,,Ég get vel skilið það að aðili sem hefur tekjur af því að selja flugelda skuli vera á móti því að fólki sé ráðlagt að spara við sig flugeldakaup," segir Jón í pistli á heimasíðu sinni. Af gefnu tilefni tekur Jón fram að hann telur björgunarsveitir og slysavarnarfélög vinna nauðsynlegt og óeigingjarnt starf. Hið opinbera hafi ekki stutt nægjanlega vel við félögin. Engu að síður telur Jón heppilegra að aðrar fjáröflunarleiðir verði skoðaðar en flugeldasala. ,,Í dæmaskyni fyrir Kristinn og félaga hans þá bendi ég á að ég starfa innan SÁÁ og legg þeim samtökum það til sem ég get og er beðinn um. Það geri ég af því að ég tel SÁÁ vinna lífsnauðsynlegt starf. Það breytir þó ekki því að ég get ekki samþykkt eða talið það heppilegt að SÁÁ hafi tekjur af spilafíkn. Mér finnst það óeðlilegt. Hins vegar tek ég undir það sparnaðarráð Kristins að fólk spari við sig áfengiskaup," segir þingmaðurinn. Pistil Jóns Magnússonar er hægt að lesa hér.
Tengdar fréttir Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum. Hann var gestur Sigurjóns Egilssonar í þættinum Sprengjusandi í morgun þar sem meðal annars rætt um hvernig almenningur getur sparað. Auk þess talaði Jón fyrir því að fólk minnkaði gosdrykkju sína. Jón var eitt sinn formaður Neytendasamtakanna. 28. desember 2008 11:12 Ummæli Jóns um flugelda út í hött Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segir að ummæli Jóns Magnússonar, þingflokksformanns Frjálslynda flokksins, um að fólk eigi að spara og sleppa því að kaupa flugelda séu kjánaleg og út í hött. 28. desember 2008 13:45 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri en einn hafi verið að verki Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Fleiri fréttir Staðan orðin „þokkalega góð“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Sjá meira
Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum. Hann var gestur Sigurjóns Egilssonar í þættinum Sprengjusandi í morgun þar sem meðal annars rætt um hvernig almenningur getur sparað. Auk þess talaði Jón fyrir því að fólk minnkaði gosdrykkju sína. Jón var eitt sinn formaður Neytendasamtakanna. 28. desember 2008 11:12
Ummæli Jóns um flugelda út í hött Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segir að ummæli Jóns Magnússonar, þingflokksformanns Frjálslynda flokksins, um að fólk eigi að spara og sleppa því að kaupa flugelda séu kjánaleg og út í hött. 28. desember 2008 13:45