Feðgar dæmdir fyrir húsbrot 20. nóvember 2008 14:34
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt föður og tvo syni í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot hjá manni sem leigði hjá dóttur mannsins og systur bræðranna. Ákæran í málinu var í þremur liðum. Öðrum sonanna var gefið að sök að hafa ásamt tveimur öðrum ruðst í heimildarleysi inn í íbúðina í ágúst í fyrra þar sem leigjandinn lá veikur heima. Komu þeir þangað fyrir hönd systur mannsins vegna fregna af því að leigjandinn hefði gengið illa um íbúðina. Út frá framburði vitna taldi dómurinn ekki sannað að húsbrot hefði átt sér stað í þetta skiptið. Feðgunun þremur var jafnframt gefið að sök húsbrot, líkamsárás og eignaspjöll með því að hafa ruðst inn í íbúðina í heimildarleysi um tveimur vikum eftir fyrsta atvikið. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hent hluta af eigum leigjandans út úr íbúðinni og við það skemmt stafræna myndavél. Enn fremur var bræðrunum gefið að sök að hafa veist harkalega að leigjandanum þegar hann nálgaðist lyfin sín og hent leigjandanum út úr íbúðinni þannig að hann datt aftur fyrir sig. Ætluðu þeir að bera leigjandann út úr íbúðinni. Dómnum þótti sannað út frá háttalagi mannnanna að þeir hefðu í þetta sinn ekki komið í skoðunarferð og að þeir hefðu enga heimild haft til að bera leigjandann út. Því hefðu þeir framið húsbrot. Þeir voru hins vegar sýknaðir af eignaspjöllum og líkamsárás. Í þriðja lið ákærunnar var föðurnum gefið að sök að hafa komið aftur þennan dag og ruðst inn í íbúðina þrátt fyrir að hafa fengið skýr fyrirmæli frá lögreglu um um að halda sig fjarri henni. Maðurinn sagðist hafa verið að fara með lykil að nýrri læsingu að íbúðinni. Segir dómurinn að þótt lögregla hafi verið á staðnum hafi faðirinn ekki mátt fara inn án samþykkis og að föðurnum hefði verið í lófa lagið að láta lögregluna fá lykilinn utan íbúðarinnar. Var hann því sakfelldur fyrir húsbrot í þetta sinni líka. Auk skilorðsbundins dóms voru feðgarnir dæmdir til að greiða leigjandanaum bætur upp á 150 þúsund krónur hver um sig.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira