„Ég líð ekkert svona á mínu svæði“ 29. febrúar 2008 15:22 Ágúst Einarsson.
Þrír nemendur, tveir menn og ein kona, voru rekin úr Háskólanum á Bifröst í dag í kjölfar þess að fíkniefni fundust í íbúðum þeirra á háskólasvæðinu. Þetta staðfestir Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, í samtali við Vísi. „Ég líð ekkert svona á mínu svæði," segir Ágúst. Fjölmennt lögreglulið, þar á meðal sérsveitarmenn, gerði húsleit í þremur nemendaíbúðum við Háskólann á Bifröst í gærkvöldi. Leitin var gerð í samráði við skólayfirvöld og voru sérsveitarmennirnir vopnaðir þar sem óttast var að vopn væru í einni íbúðinni, en svo reyndist þó ekki. Kannabis, amfetamín og kókaín fundust í öllum íbúðunum, en aðeins í neysluskömmtum, og teljast málin upplýst. „Ég er búinn að reka þessa þrjá nemendur sem áttu þarna hlut að máli." Ágúst segist líta málið mjög alvarlegum augum en að því sé nú lokið af hálfu skólans. Hann segir ekki sérstaka þörf á því að grípa til sérstakra aðgerða á háskólasvæðinu vegna málsins. „Þetta var afmarkað mál sem lögreglan var að rannsaka og við erum búin að gera þær ráðstafanir sem gera þarf hér hjá okkur. Við tókum á því með þessari festu og vísuðum þeim strax úr skólanum." Að sögn Ágústs höfðu nemendurnir ekki numið lengi við Bifröst.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira