Flóð valda usla víða um heim 27. júlí 2008 19:00
Mestu flóð í hundrað ár hafa kostað 17 manns lífið í Úkraínu, Moldóvu og Rúmeníu og valdið gríðarlegum skemmdum á ökrum og beitilandi. Jafnframt eru flóð í suður- og vestur Þýskalandi að gera mönnum lífið leitt. Áframhaldandi rigningum er spáð í vesturhluta Úkraínu næstu daga. Þar hefur rignt látlaust í nærri viku með þeim afleiðingum að meira en 20 þúsund heimili hafa farið undir vatn og rúmlega sjö þúsund manns bjargað, flestum með bátum og þyrlum. Vatnsborð ánna Prut og Dnéstr eru enn hættulega há og er hætt við að fleiri götur og vegir skemmist dragi ekki úr regninu. Allt að þrír fjórðu væntanlegrar uppskeru á flóðasvæðunum í Úkraínu hafa eyðilagst, sem verður til að auka á vanda bænda á svæðunum, sem hafa það ekkert of gott fyrir. Í Rómaníu hafa níu þúsund manns úr tvö hundruð þorpum verið flutt að heiman. Þar hafa tvö þúsund heimili skemmst eða eyðilagst í vatnsflaumnum og að minnsta kosti 19 þúsund hektarar ræktarlands eru undir vatni. Vatnið í Rómaníu kemur mest frá Úkraínu en árin Prut er þar á landamærunum. Þrjú þúsund lögreglu- og hermenn hafa verið kallaðir út til að verja byggð fyrir enn meira vatni sem búist var við frá Úkraínu síðar í dag. Í Þýskalandi voru mikil flóð umhverfis borgina Dortmund í vesturhluta landsins. Þar hefur flætt inn í kjallara og bílar farið á kaf í vatni. Vegum hefur verið lokað. Flóð eru einnig á afmörkuðum svæðum á milli Dusseldorf og Aachen. Og það er víðar sem veður er óvenjulegt. Í úthverfum Sydney í Ástralíu féll snjór í nótt - í fyrsta sinn í rúmlega 170 ár.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira