Innlent

Ekki búið að ganga frá láni frá Rússum

Ekki er búið að ganga frá fjögurra milljarða evra láni frá rússneskum yfirvöldum sem tilkynnt var um í morgun. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Iðnó fyrir stundu.

Hann sagðist sjálfur hafa lagt drög að því síðsumars að leita hófanna hjá Rússum um gjaldeyrislán og sú ósk hefði verið í vinnslu síðan. Ekki hefði verið hægt að skýra frá því fyrr en staðfesting hefði fengist á því. Rússar séu tilbúnir að ræða þetta á mjög jákvæðum nótum en ekki sé búið að ganga endanlega frá kjörum lánsins. Þetta séu mikil og góð tíðindi og þakkarverð af hálfu rússneskra yfirvalda. Seðalbankinn ynni í málinu og ef af láninu yrði myndi það verða notað til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann.

Geir fór einnig yfir atburði gærkvöldsins og morgunsins, það er samþykkt neyðarlaga, yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á stjórn Landsbankans og festingu gjaldmiðilsins. Hann sagði meðal annars að fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra myndu í dag funda með starfsmönnum Landsbankans og reyna að svara spurningum þeirra.

Geir sagðist aðspurður að Rússar fengju ekki aðstöðu á Keflavíkurflugvelli í skiptum fyrir lánið heldur væri það á algjörlega eðlilegum forsendum. Vilji væri hjá Rússum til að ljúka málinu farsællega og hann væri sannfærður um að slíkt lán myndi styrkja trúna að krónuna.

Geir þakkaði Fjármálaeftirlitinu fyrir þess störf í Landsbankanum í nótt og sagði skilanefnd tekna við stjórn bankans í stað bankarðs. Allt gengi með eðlilegum hætti í útibúum bankans. Sagðist Geir sannfærður um að viðbrögð ríkisstjórnarinnar og ætlunin að koma á stöðugleika hefði komið í veg fyrir upplausnarástand sem hefði skapast ef einn bankanna hefði farið í þrot. Ætlunin væri að skilja að innlenda og erlenda starfsemi Landsbankans.

Þá sagði forsætisráðherra aðspurður að engar vangaveltur væru uppi um að skipta um áhöfn í Seðlabankanum eins og farið hefði verið fram á að undanförnu.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×