Erlent

Engir byssumenn á flugvellinum í Nýju Delí

Allt er með kyrrum kjörum á alþjóðaflugvellinum í Nýju Delí á Indlandi segir vitni Reuters fréttastofunnar sem er á flugvellinum. Á vef breska ríkisútvarpsins var sagt frá skothljóðum á flugvellinum fyrr í kvöld. Þar var því haldið fram að öryggisgæslan á flugvellinum hefði skotið hátt í 6 byssumenn.

Indverska sjóvnarpsstöðin NDTV sagði frá tveimur mjög snörpum hvellum sem hefðu gert öryggisvörðum flugvallarins bylt við fyrr í kvöld.

Ekkert óðelilegt kom hinsvegar í ljós eftir aö lögreglan hafði kannað svæðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×