Tíu fíkniefnamál á Landsmóti 5. júlí 2008 12:07
Tíu fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Hvolfsvelli í gærkvöldi og tók tæplega þrjátíu manns fyrir of hraðan akstur við hefðbundið umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í gærkvöld og í nótt. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Erilsamt hefur verið hjá Lögreglunni á Hvolfsvelli síðustu daga meðal annars vegna Landsmóts hestamanna að Gaddstaðaflötum á Hellu. Mótið hefur hins vegar farið vel fram að sögn lögreglu. 10 fíkniefnamál komu upp í gærkvöld og í nótt þegar umferð á Suðurlandsveginum við Hellu var vöktuð og voru 26 manns teknir fyrir of hraðan akstur. Þá voru tvær líkamsárásir tilkynntar til lögreglu á höfuborgarsvæðinu í nótt. Ráðist var á mann á Laugavegi og var hann fluttur með áverka í andliti á slysadeild. Þá var einnig ráðist á konu sem stödd var á Tryggvagötu og var flutt á slysadeild. Harður árekstur bifhjóls og bifreiðar varð á Suðurgötu við Háskólabíó laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld. Ökumaður hjólsins slasaðist töluvert og var fluttur á Slysadeild, ökumaður bifreiðarinnar var einnig fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Þá voru tveir karlmenn á tvítugsaldri handteknir fyrir að ráðast á karlmann á sama aldri við tjaldsvæðið á Akranesi í nótt. Mennirnir gistu fangageymslur í nótt og verða yfirheyrðir í dag. Sex voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis á Akranesi í gær. Hjá einum ökumanni fundust fimmtán grömm af meintu amfetamíni og kókaíni. Hann var yfirheyrður og sleppt að því loknu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira