Erlent

Bush segir allt að vinna í Afganistan

George Bush Bandaríkjaforseti kom til Búkarest í Rúmeníu í gær til þess að vera viðstaddur leiðtogafund NATO. Í ræðu sem hann hélt í morgun sagði hann að NATO yrði að leggja allt í sölurnar til að sigrast á Talibönum og meðlimum al Kaída í Afganistan, hvað sem það kostar.

Bush sagði að takist NATO ekki að vinna bug á hryðjuverkamönnunum í Afganistan þá þurfi bandalagsríkin að mæta þeim á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×