Innlent

Lögregla leitar að 6 ára einhverfum pilti í Breiðholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að sex ára gömlum pilti í Breiðholti. Pilturinn sem er einhverfur var staddur á leiksvæði við Fellaskóla í Breiðholti en lögreglu barst tilkynning um hvarf piltsins um fimm leytið í dag.

Pilturinn er klæddur í hermannaúlpu og er með svarta húfu á höfðinu. Eins og fyrr segir er hann einhverfur og á erfitt með að fóta sig í þessu umhverfi.

Hafi einhver upplýsingar um ferðir piltsins er hann beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×