Minnkandi verðmunur hjá lágvöruverðsverslunum og öðrum 19. nóvember 2008 16:12 MYND/Valgarður
Verðlagseftirlit ASÍ segir að vísbendingar séu um að verðmunur á milli lágvöruverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka og vísar þar til nýrrar könnunar á matarverði sem gerð var í gær. Kannað var verð á 50 vörum og reyndist Bónus oftast með lægsta verð á þeim, eða í 31 skipti af 50. Fjarðarkaup og Kaskó voru næst oftast með lægsta verðið eða í 7 tilvikum. Nóatún reyndist hins vegar með hæsta verðið á 34 af 50 vörum sem skoðaðar voru en Hagkaup var næstoftast með hæsta verðið eða á 11 vörum. Helmingsverðmunur á heilum ferskum kjúklingi Eftir því sem fram kemur á vef ASÍ reyndist mesti verðmunur í könnuninni á kílóverði af heilum ferskum kjúklingi. Hann reyndist dýrastur í Nóatúni og Fjarðarkaupum og kostaði þar 1.070 krónur en ódýrastur í Nettó þar sem hann kostaði 525 krónur. Munurinn nemur 104 prósentum. Minnstur verðmunur reyndist hins vegar á kílóverði af forverðmerktum Skólaosti sem kostaði 1.190 krónur í Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum þar sem veittur er 5 prósenta afsláttur af merktu verði við kassa, en 1.253 krónur í öllum öðrum verslunum. Stærri pakkningar ekki alltaf ódýrari ASÍ skoðaði verð á algengum bökunarvörum fyrir jólabaksturinn og reyndist í flestum tilvikum talsverður munur á hæsta og lægsta verði þessara vara. „Sem dæmi má nefna að 42% munur var áLjóma smjörlíki sem var ódýrast kr. 147 í Bónus en dýrast kr. 209 í Nóatúni, og 74% verðmunur var á glasi af vanilludropum sem kostuðu kr. 97 í Bónus en kr. 169 í Samkaupum-Úrvali. Það verkur eftirtekt að stærri pakkningar virðast ekki alltaf skila sér í lægra einingaverði. Strásykur frá Dansukker er bæði til í 1 kg. og 2 kg. pakkningu í sumum verslunum. Í Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali er hagstæðara að kaupa tvær kílóapakkningar en eina tveggja kílóa. Það sama á við um Konsum suðusúkkulaði sem bæði er til í 200 gr. og 300 gr. pakkningum í Hagkaupum og Nóatúni. Kílóverðið á minni pakkningunni er í báðum verslunum lægra en á þeirri stærri. Þessi dæmi sýna að það getur borgað sig að skoða vel mælieiningaverð á vörum sem til eru í mörgum pakkastærðum, en upplýsingar um það eiga að vera aðgengilegar á verðmerkingu vörunnar," segir ASÍ. ASÍ bendir enn fremur á að munur á hæsta og lægsta verði á þeim vörum í könnuninni sem einnig voru skoðaðar í sambærilegri könnun í þessum sömu verslunum í mars hefur í flestum tilvikum minnkað talsvert. Sem dæmi má nefna var munur á hæsta og lægsta verði á Fitty samlokubrauði 77 prósent í mars en er nú 32 prósent. Munur á hæsta og lægsta kílóverði á banönum var 153 prósent í mars en er nú 83 prósent. „Þetta gefur vísbendingu um að verðmunur á milli lágvöruverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka. Þetta er einnig i samræmi við niðurstöður sem verðlagseftirlitið hefur birt undanfarið um breytingar á verði vörukörfu ASÍ sem hefur frá því í vor hækkað meira í lágvöruverðsverslunum en öðrum verslunum," segir ASÍ enn fremur.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira