Grímseyjarhrottinn á Litla-Hraun SB skrifar 3. júlí 2008 11:36 Alexander handtekinn í Grímsey. Sérsveitin leiðir hann burt.
Alexander Jóhannesson, drengurinn sem gekk berserksgang í Grímsey, var fluttur á Litla Hraun í morgunn. Meðan hann beið eftir að hefja afplánun tók hann þátt í hópslagsmálum fyrir utan heimili sitt á Akureyri og var handtekinn af sérsveitinni í Grímsey. Alexander var í byrjun júní dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir hótanir og líkamsárásir þar sem hann notaði hníf sem vopn. Nágrannar Alexanders, sem búa í sömu blokk og hann, gagnrýndu yfirvöld á Rúv í gær fyrir aðgerðarleysi í máli Alexanders. Þau sögðu stanslausan ófrið af honum í blokkinni og hann hefði hótað íbúum með skrúfjárni. „Það er einkennilegt að hann sé kominn til Grímseyjar tveimur dögum eftir að hann tekur þátt í hópslagsmálum hér á Akureyri," sagði Friðjón G. Snorrason, nágranni Alexanders. Eiginkona hans, Anna Sigríður, tók undir með honum. „Mér finnst rétt að allir fái sinn sjens að áfrýja en mér finnst líka rétt að skoða alvarleika málsins, hver okkar réttur er að hafa frið í húsinu okkar," sögðu þau í samtali við RÚV í gær. Þrír sérsveitarmenn voru sendir frá Akureyri til Grímseyjar til að sækja Alexander. Hann hafði ógnað fólki með slaghamri og hnífi. Í hópslagsmálum tveim dögum áður höfðu golfkylfur verið notaðar sem vopn. Erlendur Baldursson hjá Fangelsismálastofnun staðfesti að Alexander hefði verið fluttur á Litla-Hraun í morgunn. Alexander var fyrst vistaður á geðdeild á Akureyri en færður yfir í Hegningarhúsið í gær og þaðan á Litla-Hraun þar sem hann mun afplána dóminn.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Laun bæjarfulltrúa lækkuð Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Richard Attenborough allur Erlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira