Innlent

Vinna saman gegn tóbaksnotkun sjúklinga

Frá undirritun samstarfssamningsins í dag.
Frá undirritun samstarfssamningsins í dag.

Landspítali og Lýðheilsustöð hafa gengið til samstarfs um að vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga með skipulagðri fræðslu, viðeigandi meðferð og gerð fræðsluefnis fyrir starfsfólk á sjúkrahúsinu.

Markmiðið er ,,að þeir sem leita til Landspítala eftir þjónustu fái viðeigandi meðferð sem styður þá til tóbaksleysis meðan legið er inni," segir í fréttatilkynningu.

Samningurinn er gerður til þriggja ára. Eftir þann tíma er gert ráð fyrir að komið verði virkt ferli innan Landspítala sem tryggi að meðferð við tóbaksnotkun sé fastur liður í allri meðferðaráætlun hjá þeim sem þess þurfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×