Rætt við ýmsa aðila 3. október 2008 12:31
Viðskiptaráðherra segir að efnahagsástandið verði skýrt og bætt á næstu dögum. Hann segir að verið sé að ræða við ýmsa, en vill ekki gefa upp hverja, né hvenær niðurstaða fáist. Hann neitar því að ríkisstjórnin sé ráðalaus. Þá segir hann fráleitt að olíuskortur sé yfirvofandi á landinu. Forsætisráðherra vildi ekki ræða við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar fyrir utan Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sátu ríkisstjórnarfund í morgun. Stór verkefni bíða úrlausnar ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra sagðist vera að flýta sér á Alþingi og sagðist aðspurður um hvort aðgerðir hefðu verið ræddar að það væri ekkert sem væri í frásögur færandi. Og þar með var hann rokinn út í bíl með fréttamenn á hælunum. Á leið sinni inn í bílinn var Geir spurður að því hvort samningur við norrænu seðlabankana yrði nýttur. „Við getum ekki svarað þessu svona, allra síst við þessar aðstæður eins og þið eruð að skapa mér núna," sagði Geir. MYND/Stöð 2 Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að ekki hafi verið leitað til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins enda væri það neyðarúrræði. Aðspurður hvort ríkisstjórnin hafi á annað borð leitað eftir lánum segir Björgvin að að sjálfsögðu standi yfir sífelld leit að erlendu láni en það sé verið að vinna að mörgu öðru og frá því verði greint og það liggi fyrir. Þá bendir hann á að peningar séu til í gjaldeyrisvarasjóði ríkisins. Hann vill ekki tímasetja hvenær aðgerðir verða kynntar og aðspurður hvort tíminn sé ekki afar naumur segir Björgvin: „Tíminn er bara eins og hann er, við höfum enga valkosti um það." Íslendingar muni sigla út úr þessum ólgusjó. Viðskiptaráðherra segir fólk eðlilega óttaslegið. Aðspurður hvort ríkisstjórnin eigi þá ekki að slá á ótta fólks og greina frá aðgerðum segir Björgvin að óábyrgt sé að gefa eitthvað út sem sé ekki í hendi.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira