Vildu fresta umræðu um fjárlög vegna óvissunnar 3. október 2008 11:42 MYND/GVA
Fyrsta umræða um fjárlög næsta árs hófst á Alþingi í dag í skugga mikillar efnhagskreppu. Þingmenn Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins vildu hins vegar við upphaf þingfundar að umræðu um fjárlagafrumvarpið yrði frestað vegna óvissunnar í samfélaginu. Það var Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, sem kom í pontu og benti á að umræða fjárlagafrumvarp hefði hliðsjón af efnhagsspám sem gerðar hefðu verið. Vandinn væri hins vegar sú óvissa sem menn stæðu frammi fyrir en beðið væri eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Ef lýsa ætti á myndrænan hátt óvissunni þá væri hún eitt spurningarmerki. Spurði Ögmundur hvað ríkisstjórnin hygðist gera varðandi skuldbindingar og fjármálakerfi landsins. Hann teldi eðlilegt við þessar aðstæður að fresta umræðu um fjárlagafrumvarp þar til það lægi fyrir hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin legði til. Fjárlagafrumvarp skrifað með ósýnilegu bleki Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, vísaði hins vegar í stjórnarskrána og sagði að umræður ættu að fara fram um frumvarpið þegar það hefði verið lagt fram. Taldi hann eðlilegt að ganga til umræðunnar svo fjárlaganefnd gæti í framhaldinu hafið sína vinnu. Í sama streng tók Geir H. Haarde forsætisráðherra sem sagðist skilja ábendingar um óvissu. Það breytti ekki því að það væri eðlilegt að ganga til verka varðandi fjárlagafrumvarpið. Málið yrði að komast í vinnslu í þinginu og síðan myndi framvinda þess markast af ákvörðunum sem teknar yrðu á næstunni. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði að umræðan um fjárlög yrði ómarkviss og ómarktæk á þessari stundu. Fjárlagafrumvarpið endurspeglaði ekki veruleikanna og það væri skrifað með ósýnilegu bleki og í raun marklaust plagg. Framsóknarmenn sæju hins vegar ekki ástæðu til að fresta umræðunni heldur ætti málið að fara til fjárlaganefndar og þar yrðu gerðar grundvallarbreytingar á frumvarpinu. Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, tók undir orð Ögmundar og vildi fresta umræðunni. Hann benti á það að kostnaður vegna yfirtöku ríkisins á Glitni hefði aukist úr 84 milljörðum í 93 á innan við viku. Forgangsverkefni væri að ná stöðugleika og forsætisráðherra yrði að vinna að því. Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði fjárlagafrumvarpið alltaf ákveðinn spádóm og að það væri alltaf lagfært. Þá sagði hann að menn gætu ímyndað sér óvissuna ef Alþingi myndi ekki fylgja stjórnarskrá og ræða fjárlagafrumvarpið. Umræðan væri liður í því að skapa þann stöðugleika sem eftir væri kallað
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira