Þorsteinn Már hvetur hluthafa til að samþykkja tilboð ríkisins 3. október 2008 15:06 Þorsteinn Már Baldvinsson.
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, hvetur alla hluthafa bankans til þess að samþykkja tilboð ríkisins. Hann segist treysta því að ríkisvaldið komi til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni og bjóði þeim „sanngjarnt úrræði" sem geti dregið úr tjóninu. Þorsteinn segist telja réttast að allir hluthafa viti skoðun hans á málinu og því sendir hann eftirfarandi yfirlýsingu: „Ég hvet alla hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð íslenska ríkisins um kaup á nýju hlutafé í Glitni banka að upphæð 600 milljónir evra. Ég tel rétt að allir hluthafar bankans, stórir og smáir viti þessa skoðun mína. Ég treysti því að ríkisvaldið muni koma til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni vegna þessarar ráðstöfunar og bjóði þeim sanngjarnt úrræði sem geti á komandi árum dregið úr þessu tjóni. Ég tel að ekki sé lengur nein óvissa um það, að eftir hluthafafund Glitnis í næstu viku verði bankinn í meirihlutaeigu íslenska ríkisins og þar með afar traustur banki. Ég tel ljóst að með þessum hætti eru allar innistæður viðskiptavina bankans tryggðar. Stjórn Glitnis og stærstu hluthafar hafa þegar lýst því yfir að þeir muni styðja þá tillögu að ríkið kaupi hlut í Glitni banka og að þeir muni greiða atvæði með þeirri tillögu á hluthafafundi Glitnis sem haldinn verður 11. þessa mánaðar. Mér finnst einnig brýnt að aðilar slíðri sverðin og einbeiti sér að því að skapa ró um Glitni. Það þjónar hagsmunum allra hluthafa Glitnis og viðskiptavina og dregur úr óvissu sem hefur mjög neikvæð áhrif á markaði við núverandi aðstæður. Ég fagna sérstaklega orðum forsætisráðherra þar sem hann ítrekaði að innistæðueigendur okkar hér á landi þyrftu ekki að óttast sinn hag, ríkið myndi tryggja sparifjáreigendur. Það væri ástæðulaust að óttast það að innistæður hér á landi væru ekki nægilega tryggar. Eins fagna ég orðum seðlabankastjóra þar sem hann tók í sama streng. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis banka hf."
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira