Bush lýsti yfir neyðarástandi í Texas 13. september 2008 18:37
Fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, Houston í Texas, var sem lömuð í dag þegar fellibylurinn Ike reið yfir. Engar fréttir hafa borist af mannskaða en gífurleg flóð eru á þéttbýlissvæðum sem fellibylurinn fer nú um. Rafmagn fór af heimilum þriggja milljóna manna. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi í Texas. Ike var annars stigs fellibylur þegar hann gekk á land við Galveston, borg sem er byggð á sandrifjum undan ströndum Texas. Sjávargangurinn færði fimm metra háan brimvarnagarð í kaf. Garðurinn var byggður eftir að átta þúsund manns létu lífið í ofsaveðri fyrir rúmum eitt hundrað árum. Vítt og breitt um strandhéruð Texas liggur vatn yfir þéttbýlissvæðum. Björgunarsveitir notuðu þyrlur til að ná fólki úr sjálfheldu áður en mesta rokið skall á. Um milljón manns flúði mestu hættusvæðin en aðrir kúldruðust á tiltölulega öruggum stöðum í húsum sínum. Um 80 kílómetra inni í landi barði rokið skýjakljúfana í Houston, þar sem fjórar milljónir manna búa. Rúður brotnuðu meðal annars í Chase turninum, sem er 75 hæðir. Þegar Ike náði til Houston var hann orðinn fyrsta stigs fellibylur. Hann er nú á leið norður eftir Texas og verður kominn inn í Arkansas í kvöld. Olíufyrirtæki stöðvuðu vinnslu í þrettán olíuhreinsistöðvum og alls var skrúfað fyrir fimmtung af olíuvinnslu Bandaríkjamanna vegna veðursins. Í Galveston eru björgunarmenn nú komnir aftur til starfa - en þeirra vinna lá niðri á meðan mesta ofsaveðrið gekk yfir í morgun.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira