Innlent

Forsvarsmönnum Glitnis var stillt upp við vegg

Seðlabankinn stillti forsvarsmönnum bankans upp við vegg segir stjórnarformaður Glitnis. Seðlabankastjóri fullyrðir að Glitnir hefði orðið gjaldþrota ef ríkið hefði ekki komið til hjálpar, lagt til 84 milljarða af gjaldeyrissjóði landsmanna og eignast 75 prósenta hlut í bankanum. Hlut sem ríkið keypti á genginu fimm og varð til þess að markaðsvirði bankans rýrnaði um rúmlega 60 prósent.

Forsvarsmenn Glitnis höfðu samband við Seðlabanka Íslands í síðustu viku vegna vandræða og úr varð að ríkið eignaðist 75 prósenta eignahlut í bankanum og reiða fram 84 milljarða.

Gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans er nýttur til kaupanna og minnkar hann því sem þessari upphæð nemur.

Þá sögðu bæði Davíð Oddssson og Lárus Welding, forstjóri Glitnis, að um skammtímalauafjárvanda væri að ræða sem rekja mætti til falls bandaríska bankans Lehman Brothers.

Þó nokkuð ósamræmi er í svörum seðlabankastjóra og viðskiptaráðherra, og svo ráðamanna bankans um mikilvægi þess að Seðlabankinn greip inn í.

Stjórnarformaður Glitnis vill þó meina að vel hefði verið hægt að fara aðra leið til að bjarga bankanum í viðtali við Sindra Sindrason í dag.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum ákváðu í síðustu viku að stofnaður yrði sjóður til að leysa þau vandræði sem komin eru upp hjá bönkum þar í landi og sú ákvörðun er enn til umræðu í þinginu vestra. Þar gerast hlutirnir ekki í skjóli nætur eins og á Íslandi.

Við Seðlbankann í nótt voru teknar myndir af bifreið. Undir stýri sat seðlabankastjóri, forsætisráðherra var farþegi og fjármálaráðherra var farþegi í aftursætinu.

Hér gerast hlutirnir líka mun hraðar og athygli vekur að í viðtali við Viðskiptablaðið í dag kemur fram að viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson, yfirmaður bankamála á Íslandi, fékk fyrst veður af málinu á föstudag.

Á huldu hversu lengi ríkið muni halda í þennan 75 prósenta eignahlut í Glitni, né heldur hvernig verður staðið að sölu hlutarins þegar að því kemur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×