Erlent

Frumkvöðull í bónusgeimferðum hætt kominn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fyrrum verkfræðingur hjá geimferðastofnuninni NASA sem vinnur að lággjaldaferðum út í geiminn fyrir almenning þarf líklega að endurreikna dæmið.

Jim Akkerman á að baki farsælan 36 ára feril sem eldflaugaverkfræðingur hjá NASA. Hann er nú kominn á eftirlaun en situr ekki auðum höndum heldur vinnur að hönnun geimfars sem hægt er að senda með farþega út fyrir gufuhvolfið fyrir tiltölulega litla fjárhæð.

Eitthvað virðist þó hafa skolast til í útreikningum Akkermans þar sem vinnuaðstaða hans sprakk í loft upp á laugardaginn eftir mistök við blöndun eldflaugaeldsneytis. Enginn slasaðist í sprengingunni og sennilega verða engir eftirmálar þar sem lögregluyfirvöld fá ekki séð að neinn glæpur hafi verið framinn. Akkerman hyggst ekki láta atvikið á sig fá og er staðráðinn í að fara að teikniborðinu á ný og vinna þar að bónusgeimferðum handa ævintýraþyrstum almenningi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×