Í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða barn sitt í örbylgjuofni 9. september 2008 12:37
Bandarísk kona var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn fyrir að hafa myrt mánaðagamalt barn sitt með því að setja það í örbylgjuofn. Saksóknari fór fram á að hin tuttugu og átta ára gamla China Arnold yrði dæmd til dauða fyrir ódæðið. Kviðdómur var klofinn í afstöðu sinni til þess hvort svo ætti að vera eða hvort hún ætti að fá lífstíðarfangelsisdóm án möguleika á reynslulausn. Dómari úrskurðaði í morgun að Arnold skyldi fá lífstíðardóm og hafnaði ósk verjanda hennar um að hún ætti möguleika á reynslulausn eftir aldarfjórðung í fangelsi. Engin reynsluausn yrði í boði því ódæðið væri það hræðilegt. Arnold hefur haldið fram sakleysi sínu frá fyrsta degi. Dóttir hennar Pari Talley var myrt í ágúst 2005. Skömmu áður höfðu Arnold og kærasti hennar deilt um faðerni dótturinnar. Engir ytri áverkar sáust á barninu en sum líffæra þess voru hins vegar illa brennd og þótti það benda til að það hefði verið myrt á þennan óhugnanlega hátt. Lífssýni úr Paris Talley fundust inni í örbylgjuofninum. Klefafélagi Arnold bar fyrir dómi að hún hefði játað á sig morðið fyrir sér. Hún hefði sett barnið í ofninn og kveikt á honum því hún hafi verið hrædd um að kærastinn færi frá henni ef hann kæmist að því að hann ætti ekki barnið. Búið er að rétta tvívegis yfir Arnold vegna málsins. Fyrri sakfelling var ógild þegar ný vitni komu fram í málinu. Verjandi hennar segir marga annmarka enn á málinu. Hann vill að nýja sakfellingin verði dæmd ógild og að aftur verið réttað yfir Arnold.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira