Landsyfirréttur taki við áfrýjunarmálum til Hæstaréttar 17. október 2008 15:13 MYND/Stefán
Nefnd sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í fyrra í tengslum við dómskerfi landsins leggur til að stofnað verði nýtt millidómsstig sem beri heitið Landsyfirréttur. Nefndinni var falið að fjalla um hvernig tryggja mætti sem best milliliðalausa sönnunarfærslu í meðferð sakamála og vill hún að á umræddu millidómsstigi verði eingöngu leyst úr sakamálum og þar fari fram sönnunarfærsla á nýjan leik. Til dómstólsins verði áfrýjað þeim sakamálum sem nú sæti áfrýjun til Hæstaréttar. Fram kemur í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins að Björn Bjarnason hafi kynnt álit nefndarinnar í ávarpi á hátíðarmálþingi lagadeildar HÍ í dag. „Í tillögum nefndarinnar kemur fram að málum yrði skotið frá hinu nýja millidómstigi til Hæstaréttar á grundvelli áfrýjunarleyfis en eftirleiðis fjalli Hæstiréttur einungis um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Hins vegar verði ekki unnt að endurskoða niðurstöðu millidómstigs um mat á sönnun og sönnunargildi munnlegra framburða. Þá verði öllum ágreiningsmálum varðandi réttarfar og rannsóknaraðgerðir í héraðsdómi skotið til millidómstigsins með kæru," segir í tilkynningunni. Nefndin gerir ráð fyrir að sex dómarar að lágmarki starfi við millidómsstigið og að dómstóllinn starfi í tveimur þriggja manna deildum. Þá verði almennt fallið frá fjölskipuðum dómi í héraði. Mál fyrir dóminum flytji ríkissaksóknari og saksóknarar við embætti hans og hæstaréttarlögmenn.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira