Lýsti skelfingardvöl á Taj Mahal-hótelinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. nóvember 2008 08:27 MYND/Telegraph
Breti á sextugsaldri lýsti skelfingardvöl á hótel Taj Mahal í Mumbai fyrir blaðamanni Daily Telegraph. „Það var óskaplegt að geta ekkert aðhafst vitandi hvað var að gerast innandyra," sagði Mark Coutts-Smith, 53 ára gamall íbúi í Hertfordskíri en hann var gestur á Taj Mahal-hótelinu í Mumbai þegar um það bil tíu hryðjuverkamenn ruddust þangað inn á miðvikudagskvöldið og hófu skothríð fyrirvaralaust. Smith segir frá því að honum hafi tekist að lauma sér út af hótelinu við fimmta mann eftir að hafa horft upp á hryðjuverkamennina skjóta fjölda manns til bana við sundlaug hótelsins og á göngum þess. Ungur maður hafi til dæmis horft inn í riffilhlaup eins ódæðismannanna en riffillinn staðið á sér og maðurinn tekið til fótanna. Þá hafi fólk falið sig eftir því sem hægt var á hótelherbergjunum, margir farið inn í fataskápa herbergjanna, brotið úr þeim bakið og þannig komist yfir í næsta herbergi. Skelfingin og ringulreiðin var algjör, að sögn Smiths. Hann segir enn fremur frá því að sprengjur hafi sprungið fyrir utan hótelið, einu sinni hafi handsprengju verið varpað út um glugga þess en í annað skipti hafi leigubifreið sprungið í loft upp.
Mest lesið Brimborg og Askja innkalla bifreiðar Bílar Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Barnajólaópera sýnd í skólum á Norðurlandi Innlent Fundi lauk á fimmta tímanum án samnings Innlent Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Erlent Pornographers’ Convention CANCELLED! News in english Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Erlent Porn Conventioneers Hit Back! News in english June 17th is Independence Day News in english Fleiri fréttir Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Skipar strax nýjan forsætisráðherra Segja leiðtoga Hamas hafa lifað árásina af Kveikt í þinghúsinu og forsætisráðherrann hrökklast frá Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Ísraelar gera loftárásir á Katar Støre á vandasamt verk fyrir höndum eftir kosningasigur Svíar munu banna farsíma í grunnskólum frá næsta hausti Kosningaúrslit í Noregi: Störe fagnar sigri en Solberg mögulega á förum Mótmæla enn og þrír ráðherrar segja af sér Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Alþjóðakerfinu ekki viðbjargandi og þörf á aðlögun Segir danska kerfið þurfa að líta á Grænlendinga sem jafningja Opinbera bréf Trumps til Epsteins Vinstriblokkin með meirihluta í Noregi Þurfa að finna fimmta forsætisráðherrann á tveimur árum Biðlaði til stjórnarandstöðunnar á pólitískum dánarbeði sínum Mál úgandsks stríðsherra gæti haft þýðingu fyrir Pútín og Netanjahú Skutu mótmælendur til bana við þinghúsið í Nepal Sex látnir í skotárás Palestínumanna í Jerúsalem Fjórar ungar vinkonur fórust í eldsvoða í Noregi Boðað til mótmæla vegna vopnasýningar í Lundúnum Sveppamorðinginn í lífstíðarfangelsi í Ástralíu Treystir á afdráttarlaus viðbrögð bandamanna við árás helgarinnar Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Sjá meira