Yoko verðlaunaði íslensku þjóðina og Vandana Shiva 9. október 2008 16:09 Ólafur Ragnar Grímsson og Yoko Ono.
Yoko Ono afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og dr. Vandana Shiva, umhverfissinna, LennonOno friðarviðurkenningu ársins 2008 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Hvorri viðurkenningunni fyrir sig fylgir 50.000 dollara peningagjöf til styrktar verkefnum í þágu friðar. Forseti Íslands tók við gjöfinni fyrir hönd íslensku þjóðarinnar og afhenti í framhaldi af því fulltrúa Rauða kross Íslands peningagjöfina. Rauði krossinn hyggst nýta verðlaunaféð til að gefa ungmennum í Palestínu og á Íslandi tækifæri til að hafa samskipti sín á milli. Dr. Vandana Shiva hlýtur friðarviðurkenninguna fyrir ævistarf sitt í þágu umhverfis og friðar í heiminum. Dr. Shiva er kunnur vísindamaður og einn af mestu afreksmönnum veraldar í umhverfismálum. Frá Höfða fyrr í dag. ,,Það er einlæg ósk Yoko Ono að á afmælisdegi John Lennons muni íslenska þjóðin og heimurinn allur sameinast í bæn um frið og stöðugleika í þjóðfélaginu," segir í tilkynningu. Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í kvöld klukkan 20. Friðarsúlan er hönnuð af Yoko Ono og reist í samvinnu við Reykjavíkurborg og Orkuveitu Reykjavíkur. Yoko býður almenningi upp á ókeypis siglingar út í Viðey daganna 9. til 15. október. Hundrað og fimmtíu manna bátur mun leggja frá bryggju á Skarfabakka klukkan 20 alla dagana. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, kynnti við athöfnina í dag útgáfu frímerkis með mynd af Friðarsúlu Yoko í Viðey. Andlitsmynd John Lennons er greipt inn í frímerkið.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira