Þjónustunet vegna aðstæðna á fjármálamarkaði opnað 9. október 2008 14:45 Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót samræmt þjónustunet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði til að auðvelda fólki aðgang að upplýsingum, nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall. Á þjónustunetinu er að finna vefsvæði með yfirliti yfir stofnanir og samtök sem veitt geta mikilvægar upplýsingar, leiðbeiningar og ráðgjöf. Upplýsingasviðin hafa verið sett upp í sex flokka: Atvinnumál, húsnæðismál, greiðsluerfiðleikar, fjármál, útlendingar á Íslandi og börn og fjölskyldur. Þjónustuvefinn má finna á slóðinni felagsmalaraduneyti.is/upplysingar Grænt símanúmer ráðuneytisins hefur einnig verið tekið í notkun: 800 1190. Símtöl í númerið eru endurgjaldslaus og þaðan má fá beint samband við stofnanir sem veita upplýsingar vegna húsnæðislána, greiðsluerfiðleika, Tryggingasjóðs innstæðueigenda og atvinnuleitar eða atvinnuleysis. Fyrirspurnalína hefur verið virkjuð og getur fólk sent félags- og tryggingamálaráðuneytinu fyrirspurnir um hvaðeina sem viðkemur þessum sérstöku aðstæðum á fjármálamarkaði. Í tilkynningu frá ráðuneytinu hvetur Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fólk til að nýta sér þjónustu vefsins. Þar segir ennfremur: „Ég vil þakka fyrir framlag fjölmargra nú síðustu daga. Mörg samtök og einstaklingar með mikla reynslu hafa boðið fram þjónustu sína og það er dýrmætt að finna samtakamáttinn meðal þjóðarinnar. Við munum nú næstu daga greina hvar álagið er mest og bregðast við með aukinni þjónustu dag frá degi. Fyrir liggur að þegar hefur orðið vart við aukið álag á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og ég hef ákveðið að styrkja starfsemi þeirrar þjónustu strax," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra þegar hið nýja vefsvæði var opnað. „Viðskiptaráðuneytið hefur sett upp sérstakt upplýsingasvæði um réttindi í tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta og heilbrigðisráðuneytið hefur unnið að eflingu þjónustu heilbrigðisstarfsmanna en afar mikilvægt er að slík þjónusta sé nú mjög aðgengileg. Síðast en ekki síst vil ég nefna að Íbúðalánasjóður mun efla upplýsingagjöf og ráðgjöf og ég bendi sérstaklega á vef sjóðsins þar sem þegar hafa verið sett fram svör við algengum spurningum. Ég hvet almenning til þess að nýta sér þessa þjónustu og leita svara og ráðgjafar um leið og spurningar vakna. Við erum til þjónustu reiðubúin," sagði Jóhanna. Bent skal á að Vinnueftirlitið mun bjóða upp á fræðsluefni til vinnustaða og starfsmanna og stutt námskeið um sálfélagslegt vinnuumhverfi og jafnframt huga sérstaklega að upplýsingum til erlendra starfsmanna. Þá hefur Fjölmenningarsetur sett fram upplýsingar um stöðu mála á erlendum tungumálum og Barnaverndarstofa hefur ásamt samstarfsaðilum komið á framfæri gátlista um það sem hafa skal í huga gagnvart börnum og ungmennum við þær aðstæður sem nú eru uppi.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Sjá meira