Neytendur hvattir til að fylgjast með verðlagningu í verslunum 9. október 2008 16:38
Vörukarfa ASÍ hækkaði mest í Bónus, um 2,9%, á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í annarri og fjórðu viku septembermánaðar ( 37. og 39. viku). Verð körfunnar hækkaði um 1,4% í Hagkaupum og 1,2% í Nóatúni á sama timabili. Mest lækkaði verð körfunnar í Samkaupum-Strax, um 4,4%, á milli verðmælinga og karfan lækkaði sömuleiðis í Nettó um 1,8% og í Kaskó um 0,9% á tímabilinu. Mikil hreyfing er á verði í matvöruverslunum um þessar mundir sem getur gert neytendum erfitt um vik að átta sig á verðlagi og gera verðsamanburð. Í ljósi mikillar lækkunar á gengi íslensku krónunnar eru teikn á lofti um áframhaldandi hækkanir á mat- og drykkjarvörum og eru neytendur því hvattir til þess að vera sérstaklega vel á verði og fylgjast með verðlagningu í verslunum. Í ljósi fjölda ábendinga sem borist hafa verðlagseftirlitinu er við þessar aðstæður einnig ástæða til að árétta að neytendur fylgist vel með því að samræmi sé á milli þess verðs sem gefið er upp á verðmerkingu inni í verslunum og því sem greitt er fyrir vöruna við kassa.Kjötvörur hækkuðu mikið Í lágvöruverðsverslununum hækkaði verð á vörukörfu ASÍ mest í Bónus, um 2,9%, sem skýrist að stærstum hluta af hækkun á kjötvörum (7,3%), brauði og kornvörum(1,8%), ýmsum matvörum (4,6%) og hreinlætis- og snyrtivörum (4,5%) í vörukörfunni, en á móti vegur að grænmeti og ávextir í körfunni lækkuðu nokkuð (-5,2%) á milli mælinga. Í Krónunni hækkaði verð vörukörfunnar um 0,5% á milli verðmælinga. Lækkun á verði körfunnar um 1,8% i Nettó má að mestu rekja til lækkana á kjötvörum( -8,3%) i körfunni en á móti vegur nokkur hækkun á grænmeti og ávöxtum (4,8%) í körfunni. Verð körfunnar lækkaði einnig i Kaskó á milli verðmælinga, eða um 0,9%, sem skýrist að mestu af lækkun á verði kjötvara (-8,1%) en á móti vegur hækkun á grænmeti og ávöxtum (4,6%), sætindum (2%) og liðnum ýmsar matvörur (3,4%) í vörukörfunni.Hækkun um 1,4% í Hagkaup Í stórmörkuðunum hækkaði verð vörukörfunnar mest, á milli verðmælinga í annarri og fjórðu viku septembermánaðar, í Hagkaupum, um 1,4% sem rekja má að mestu til hækkana á brauði og kornvörum (3,3%), grænmeti og ávöxtum( 5,7%) og sætindum (2,2%) í vörukörfunni. Í Nóatúni hækkaði heildarkarfan um 1,2% á milli mælinga sem skýrist að mestu af hækkun á kjötvörum (4,4%), ýmsum matvörum (2,6%), mjólkurvörum og brauði og kornvörum (1,2%) í vörukörfunni, en á móti vegur lækkun á hreinlætis- og snyritvörum (-11,4%) í körfunni. Í Samkaupum-Úrvali hækkaði verð vörukörfunnar um 0,5% á milli verðmælinga og voru mestar hækkanir á grænmeti og ávöxtum (2,9%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (1,3%) og brauði og kornvörum(1,1%) í körfunni.11-11 hækkaði mest klukkubúða Í klukkubúðunum hækkaði verð á vörukörfu ASÍ mest í 11-11 um 0,5% á milli verðmælinga en í 10-11 stóð verð körfunnar nánast í stað. Í Samkaupum-Strax lækkaði verð körfunnar um 4,4% á milli mælinga sem skýrist að langmestu leyti af lækkun á verði kjötvara (-16,8%) og liðnum ýmsar matvörur (-5,7%).Um vörukörfuna Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis. Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Kaskó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og SamkaupumÚrvali og Klukkubúðunum 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax. Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli vikna. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða, þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Sjá meira