Innlent

Fjórir fíkniefnasalar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á föstudag fjóra karlmenn milli tvítugs og þrítugs í aðgerðum gegn sölu og dreifingu ólöglegra fíkniefna.

Við leit lögreglu fannst amfetamín og kannabisefni sem lögreglan telur að hafi verið ætlað til sölu og dreifingar. Hinum handteknu var öllum sleppt að lokinni yfirheyrslu en þeir hafa allir áður komið við sögu í sambærilegum málum. Málið telst upplýst að sögn lögreglu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×