Ál og kopar skotmörk innbrotsþjófa vegna hækkana 1. apríl 2008 14:31 Æ fleiri hús í Bandaríkjunum leggjast í eyði vegna vanskila eigenda. Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/AP
Bandaríkjamenn verða um þessar mundir í auknum mæli vitni að innbrotum sem beinast að óhefðbundnum verðmætum. Koparrör hitaveitulagna og hvers kyns hlutir úr áli eru nýjustu skrautfjaðrirnar í þýfisflórunni samhliða mikilli hækkun á verði þessara málma í Bandaríkjunum og víðar. Þjófnaðirnir haldast í hendur við mikla fjölgun auðra húsa og íbúða í kjölfar útburðar vegna vanskila eigenda á húsnæðislánum. Hinir stolnu málmar eru gjarnan seldir brotajárnssölum og þaðan sendir úr landi, til Kína eða Indlands. Jafnvel símalagnir úr kopar hverfa eins og dögg fyrir sólu úr yfirgefnum húsum en þau skipta hundruðum í sumum hverfum, t.d. Slavic Village í Cleveland í Ohio-ríki og Brockton í Massachusetts þar sem 400 íbúðir fóru í eyði í fyrra og búist er við öðru eins í ár. Utan á sum húsin hafa verið hengd skilti með tilkynningum á borð við „Enginn kopar hér, aðeins PVC" til að fyrirbyggja innbrot og tilheyrandi skemmdir. PVC stendur fyrir fjölliða vínilklóríð en það er plastefni sem algengt er að nota í ýmsar lagnir í stað málma. „Hér seljast sum húsin á 100 dollara [7.600 kr.]," sagði Tony Brancatelli sem situr í borgarráði Cleveland. Hinir stolnu málmar seljast að hans sögn hærra verði en fasteignirnar sem þeim hefur verið stolið úr. Reuters greindi frá.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira