Nýja-Ísland, hvenær kemur þú? Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. október 2008 12:37 „
Getum við byrjað að reka Nýja-Ísland með gamla gjaldmiðlinum?" spurði Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, í viðtali við Björn Inga Hrafnsson í þættinum Markaðurinn með Birni Inga nú fyrir hádegið. Sagði Þorsteinn að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrum bankaráðsmanneskja Seðlabanka Íslands, hafi axlað ábyrgð með því að segja sig úr bankaráðinu á fimmtudaginn. Í þættinum sýndi Björn Ingi brot úr viðtali BBC við breska forsætisráðherrann Gordon Brown fyrr í vikunni þar sem ráðherrann var harðorður í garð Íslendinga. Sagði Brown meðal annars að íslensk stjórnvöld yrðu að axla ábyrgð og Íslendingum bæri skylda til að greiða Bretum innstæður þeirra til baka. Vopnin eru yfirvegun og rökfesta Þorsteinn sagði samskiptin við Breta hafa verið góð þann tíma sem hann sat sem sendiherra Íslands í London. „Við eigum fá vopn önnur í stöðunni en yfirvegun og rökfastan málflutning," sagði Þorsteinn og bætti því við að Geir H. Haarde forsætisráðherra hefði þegar beitt þeim vopnum. „Það er mikilvægt að góðu sambandi við Breta verði viðhaldið frekar en að standa í orðaskaki," sagði ritstjórinn enn fremur. Þegar Björn Ingi innti Þorstein eftir því hvaðan útrásarpeningarnir hefðu eiginlega komið svaraði Þorsteinn því til að þeir hefðu að langmestu leyti verið teknir að láni. Íslenskar bankastofnanir hefðu verið að stíga sín fyrstu skref í Bretlandi meðan á dvöl hans þar stóð og peningastefna íslenskra stjórnvalda hefði einfaldlega ekki virkað sem skyldi heldur lokkað til sín braskara. Margir samverkandi þættir hefðu svo leitt til þess sem að lokum gerðist. „Peningastefnan hefur verið mjög umdeild um nokkurn tíma og ávinningurinn af því að reka sjálfstæða mynt er vafasamur. Mistökin liggja víða og koma þyngra niður á okkur vegna þess hve veikan gjaldmiðil við höfum," sagði Þorsteinn, „Ég held að á þessari stundu sé hættulegt að sökkva sér niður í umræðu um einstaka hluti og hvað hver sagði [...]. Við þurfum að halda atvinnulífinu gangandi, við höfum ekki orku og tíma í annað." Spurningin um ESB áleitnari og brýnni „Er hægt að slá skjaldborg um Seðlabanka Íslands á meðan hann nýtur ekki trausts?" spurði Björn Ingi Þorstein sem svaraði því til að bankarnir þyrftu að vinna traustið aftur. Ein leiðin væri að skipta um bankastjóra og nú væri bara að bíða og sjá hvað ríkisstjórn Íslands hygðist gera. „Ekki má skella allri skuldinni á Seðlabankann og við þurfum að hraða því að byggja traustið upp aftur, til dæmis með því að ganga til samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn," sagði Þorsteinn. Hann sagði spurninguna um aðild að Evrópusambandinu verða áleitnari og brýnni eftir því sem tíminn liði. Með ESB-aðild yrði skipt um efnahagsumhverfi á Íslandi og efnahagsákvarðanir teknar með aga.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira