Segja Háskólann í Reykjavík ekki á flæðiskeri staddan Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. október 2008 17:39 MYND/E.Ól. „
Háskólinn í Reykjavík hefur safnað mjög sterkum sjóðum á seinustu tveimur árum og innan við fimm prósent af tekjum skólans hafa komið frá aðilum sem hafa lagt upp laupana síðustu daga," segir Jóhann Hlíðar Harðarson, upplýsingafulltrúi Háskólans í Reykjavík, inntur eftir stöðu skólans en Vísi bárust upplýsingar um að tveimur kennurum við skólann hefði verið sagt upp störfum. Jóhann staðfesti að uppsagnirnar hefðu átt sér stað fyrir nokkrum vikum en kvað þær eingöngu hafa verið á faglegum grundvelli. Þá sagði hann engar frekari uppsagnir fyrirhugaðar þar sem háskólinn sæi fram á að þurfa á öllum sínum kennurum að halda á næstunni vegna þess að spurn eftir háskólanámi ætti eftir að aukast. Við Háskólann í Reykjavík kenna um það bil 25 erlendir kennarar og þiggja einhverjir þeirra laun sín í erlendum gjaldmiðlum. Runólfur Birgir Leifsson, fjármálastjóri skólans, sagðist ekki geta nefnt í fljótu bragði hve margir kennaranna þægju laun sín í öðrum gjaldmiðlum en krónu en kostnaðaraukningu vegna gengishruns mætti ef til vill áætla nálægt 15 - 20 milljónum króna á ársgrundvelli. „Við fórum strax í þær aðgerðir, þegar Glitnir var þjóðnýttur, að bjarga öllum okkar peningum sem við vorum með í sjóðum bankanna og ég held að við höfum sloppið alveg ótrúlega vel út úr þessu. Við fengum ríkisskuldabréf upp á nokkur hundruð milljónir og restina svo nánast á innlánsreikninga svo það er ekki mikil óvissa hjá okkur. Það er eitthvað smáræði eftir í sjóðum sem á eftir að koma í ljós hvernig fer með en við höfum ekki þungar áhyggjur af því," sagði Runólfur að lokum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira