Rúmlega 35.000 fangar hófu afplánun á Norðurlöndum árið 2006 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. júlí 2008 14:19 Fangaklefi.
Samanlagt hófu 35.368 dómþolar á Norðurlöndunum afplánun á árinu 2006 sem er 14% aukning frá 2002. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu fangelsismálastofnana Norðurlandanna og taka íslensk fangelsisyfirvöld nú þátt í verkefninu öðru sinni. Miðað við fólksfjölda landanna er 14% aukningin í reynd fremur lítil, segir í skýrslunni. Í henni er enn fremur að finna upplýsingar um meðaltalsfjölda fanga á hverja 100.000 íbúa. Hann hefur aukist um 15% á Norðurlöndunum á viðmiðunartímanum en hefur þó ekki breyst að ráði milli áranna 2005 og 2006. Fangafjöldinn í Danmörku og Finnlandi minnkar á árinu 2006 en eykst í Noregi og lítillega í Svíþjóð. Ísland er með langminnsta fangafjöldann á Norðurlöndunum eða 48 fanga á hverja 100.000 íbúa og hefur fjöldinn verið svipaður á tímabilinu. Annars staðar á Norðurlöndunum er fangafjöldi á hverja 100.000 íbúa frá 71 til 79. Hlutfall gæsluvarðhaldsfanga af heildarfangafjölda er lægst á Íslandi og í Finnlandi eða 12% og 13% en í Svíþjóð er rúmlega fimmti hver fangi gæsluvarðhaldsfangi, segir á vef Fangelsismálastofnunar. Í öllum löndunum nema Finnlandi hefur fullnusta refsinga utan fangelsis færst í vöxt. Hér er aðallega um að ræða samfélagsþjónustu, skilorðsbundnar reynslulausnir og önnur skilorðsbundin viðurlög. Í Svíþjóð hefur þeim sem afplána undir rafrænu eftirliti fjölgað um 52% á viðmiðunartímabilinu en Svíar hafa tekið upp þá nýbreytni að losa menn fyrr út með því skilyrði að vera undir rafrænu eftirliti og hefur það áhrif á fangafjöldann til lækkunar. Noregur og Danmörk hafa þegar hafið fullnustu með rafrænu eftirliti en Finnar og Íslendingar ekki.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira