Lægri tónlist hvetur til nánari kynna 7. júlí 2008 21:40 Jakob Frímann Magnússon. Framkvæmdastjóri miðborgarinnar. "
Að vera í sambandi við annað fólk er lífsnauðsyn," segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri miðborgarinnar. Um helgina var gerð sú tilraun á nokkrum skemmtistöðum miðbæjarins að lækka tónlistina - fólk gat því bæði dansað og talað saman. Blaðamaður Vísis var sjálfur á Ellefunni á laugardagskvöld þar sem dansgólfið iðaði af lífi við gamaldags rokk og ról. Þegar góður vinur gekk inn uppgötvaði blaðamaður sér til mikillar furðu að ekki þurfti að öskra í eyru á næsta manni til að í manni heyrðist og þegar út var komið var ekkert hávært suð sem söng mann í svefn. Var tónlistin kannski lægri? "Þetta er hárrétt uppgötvun," segir Jakob Frímann. "Í kjölfar fundarins sem ég blés til á fimmtudaginn með öllum helstu veitingahúsaeigendum borgarinnar og íbúasamtökum var ákveðið að lækka tónlistina. Þetta var uppástunga veitingamannana sjálfra sem fengu að hlusta á harmsögur svefnvana nágranna skemmtistaða á jaðarsvæðum." Jakob segir þetta fyrirkomulag geta orðið að skemmtilegri tilbreytingu. "Þetta gæti orðið til að auka kynni fólks og manna á meðal - eða þetta gæti orðið til þess að menn yrðu gjörsamlega afhuga dansfélaga sínum þegar þeir kæmust að því að hann hefði ekkert að segja. Sem er kannski gott að komast að áður en fólk leiðist heim..." Jakob Frímann segir alveg eins von á fleiri aðgerðum til að bæta skemmtanalífið á næstunni. En eitt er víst. Dansinn dunar enn þó desíbelin lækki.
Mest lesið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Fleiri fréttir Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Sjá meira