Erlent

Ísraelar biðja Egyptalandsforseta afsökunar

Ehud Olmert og Simon Peres í Knesset í fyrradag.
Ehud Olmert og Simon Peres í Knesset í fyrradag. MYND/AFP

Simon Peres, forseti Ísraels, og Ehud Olmert, sitjandi forsætisráðherra Ísraels, hafa beðið Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, afsökunar á ummmælum sem þingmaður lét falla á ísraelska þinginu, Knesset, fyrr í dag.

Harðlínumaðurinn og fyrrum ráðherrann Avigdor Liberman gagnrýndi forystumenn Ísraels fyrir að hafa ítrekað heimsótt Mubarak á meðan að hann sýndi Ísrael ekki þá virðingu að heimsækja landið.

Mubarak hefur einungis einu sinni komið til Ísrael en það gerði hann til þess að vera viðstaddur útför Yitzhak Rabin, þáverandi forsætisráðherra, en hann var myrtur af öfgamaður árið 1995.

,,Ef hann vill ræða við okkur getur hann komið. Ef hann vill ekki tala við okkur getur hann farið til helvítis," sagði Liberman um Mubarak á Knesset í dag.

Liberman þykir umdeildur í Ísrael en frægðarsól hans reis hvað hæst þegar hann tók sæti í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu fyrir rúmum áratug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×