Innlent

Áhersla á geðheilbrigði ungs fólks í þrengingum

Einar G. Kvaran verkefnastjóri í málefnum ungs fólks hjá Geðhjálp.
Einar G. Kvaran verkefnastjóri í málefnum ungs fólks hjá Geðhjálp.

,,Þegar umfjöllun er neikvæð segir það sig eiginlega sjálft að það hefur áhrif á líðan fólks," segir Einar G. Kvaran verkefnastjóri í málefnum ungs fólks hjá Geðhjálp.

Geðheilbrigðisdagurinn verður haldinn 10. október og í ár verður athygli beint að geðheilbrigði ungs fólks en talin er sérstaka ástæðu vera til að hlúa að þeim hópi þegar kreppir að í efnhagslífi þjóðarinnar.

Aðspurður hvort ástæða er að hafa áhyggjur sérstaklega af ungu fólki í yfirstandi fjármálakreppu segir Einar að ástandið í þjóðfélaginu og óróinn á atvinnumarkaði yfirtaka allt annað. ,,Fyrsta spurningin sem krakkar fá þegar kemur að skilgreiningu þeirra er hvað þau ætla að verða þegar þau verða stór. Börn skilagreina sig út frá atvinnu," segir Einar. Umræða um uppsagnir og aðrar þrengingar hjálpi því ekki.

Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn er haldin víðsvegar í heiminum ár hvert og hefst dagskrá í Perlunni næst komandi föstudag með ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari dagsins.

Eftirfarandi aðilar standa að Gðheilbrigðisdeginum: Barnaverndarstofa, Barna og unglingageðdeild Landsspítalans (BUGL), Geðhjálp, Hugarafl, Klúbburinn Geysir, Landlæknir, Lýðheilsustöð, Fulltrúi notenda á Geðsviði Landspítalans, Samfés, Saman hópurinn, Umboðsmaður barna og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×