Óskynsamlegt að lýsa yfir auknum þorskkvóta 7. október 2008 15:23
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að það yrði mjög óskynsamlegt af sinni hálfu að lýsa því yfir að til stæði að auka þorskkvóta. Slíkar ákvarðanir eigi sjávarútvegsráðherra að taka á grundvelli ráðlegginga vísindamanna.Samúel Örn Erlingsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, spurði ráðherra hvort hann teldi koma til greina að auka þorskkvótann í ljósi alvarlegrar stöðu efnahagslífsins. Kvótinn hefði verið skorinn niður í fyrra í góðæri en nú hrikti í stoðunum og þá yrðu menn að ganga eins langt og skynsemin leyfði.Geir H. Haarde sagði ljóst að aukin verðmætasköpun væri forsenda þess að bæta kjörin í landinu en ekki væri hægt að hrapa að endurskoðun á ákvörðun um þorskkvóta. Hún væri byggð á vísindalegum grundvelli. Benti forsætisráðherra á að sjávarútvegsráðherra væri með þessi mál stöðugt til skoðunar og hann væri í góðu sambandi við greinina og vísindamenn. Það væri hins vegar ekki hyggilegt að blanda þessu inn í umræðuna um ástandið nú og það væri mjög óskynsamlegt af honum að lýsa því yfir að til stæði að auka þorskkvóta.Þá spurði flokksbróðir Samúels, Höskuldur Þórhallsson, forsætisráðherra að því hvort ríkisstjórnin myndi í ljósi aðstæðna beita sér fyrir stóriðjuframkvæmdum í Helguvík og Bakka.Geir svaraði því til að halda þyrfti áfram uppbyggingu á grundvelli náttúruauðlinda. Benti hann á að byrjað væri að reisa álver í Helguvík en álver á Bakka væri flóknara verkefni. Hann vissi þó ekki annað en allir væru að heilum hug að leysa úr því máli eftir því sem hægt væri. Hann fullvissaði Höskuld um að hann styddi Bakkaálver og efaðist ekki um eindreginn vilja Samfylkingarinnar í málinu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira