Ekki búið að ganga frá láni frá Rússum 7. október 2008 11:10
Ekki er búið að ganga frá fjögurra milljarða evra láni frá rússneskum yfirvöldum sem tilkynnt var um í morgun. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Iðnó fyrir stundu. Hann sagðist sjálfur hafa lagt drög að því síðsumars að leita hófanna hjá Rússum um gjaldeyrislán og sú ósk hefði verið í vinnslu síðan. Ekki hefði verið hægt að skýra frá því fyrr en staðfesting hefði fengist á því. Rússar séu tilbúnir að ræða þetta á mjög jákvæðum nótum en ekki sé búið að ganga endanlega frá kjörum lánsins. Þetta séu mikil og góð tíðindi og þakkarverð af hálfu rússneskra yfirvalda. Seðalbankinn ynni í málinu og ef af láninu yrði myndi það verða notað til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann. Geir fór einnig yfir atburði gærkvöldsins og morgunsins, það er samþykkt neyðarlaga, yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á stjórn Landsbankans og festingu gjaldmiðilsins. Hann sagði meðal annars að fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra myndu í dag funda með starfsmönnum Landsbankans og reyna að svara spurningum þeirra. Geir sagðist aðspurður að Rússar fengju ekki aðstöðu á Keflavíkurflugvelli í skiptum fyrir lánið heldur væri það á algjörlega eðlilegum forsendum. Vilji væri hjá Rússum til að ljúka málinu farsællega og hann væri sannfærður um að slíkt lán myndi styrkja trúna að krónuna. Geir þakkaði Fjármálaeftirlitinu fyrir þess störf í Landsbankanum í nótt og sagði skilanefnd tekna við stjórn bankans í stað bankarðs. Allt gengi með eðlilegum hætti í útibúum bankans. Sagðist Geir sannfærður um að viðbrögð ríkisstjórnarinnar og ætlunin að koma á stöðugleika hefði komið í veg fyrir upplausnarástand sem hefði skapast ef einn bankanna hefði farið í þrot. Ætlunin væri að skilja að innlenda og erlenda starfsemi Landsbankans. Þá sagði forsætisráðherra aðspurður að engar vangaveltur væru uppi um að skipta um áhöfn í Seðlabankanum eins og farið hefði verið fram á að undanförnu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira