Innlent

Gengi íslensku krónunnar fest

Seðlabankinn mun grípa til aðgerða til þess að styðja við hækkun gengisins á ný og koma þannig á stöðuleika í gengis- og verðlagsmálum. Þetta kemur fram í tilkynningu Seðlabankans. Þar er bent á að gengi krónunnar hafi fallið mikið undanfarnar vikur og sé orðið mun lægra en samrýmist jafnvægi í þjóðarbúskapnum.

Gripið verði til aðgerða og „Seðlabankinn mun láta einskis ófrestað í þeim efnum. Í samvinnu við ríkisstjórn vinnur bankinn að mótun aðgerða til þess að skapa stöðugleika um raunhæft gengi sem tryggir um leið hraða hjöðnun verðbólgu. Liður í því er efling gjaldeyrisforðans sem tilkynnt var um fyrr í morgun," segir í tilkynningunni og er þar vísað til láns frá Rússum upp á hátt í 700 milljarða króna.

Þá hefur Seðlabankinn ákveðið að eiga viðskipti á millibankamarkaði í dag á gengi sem tekur mið af gengisvísitölu 175, sem samsvarar um 131 krónu gagnvart evru. „Þótt þetta gengi sé hærra en var í lok síðustu viku er það mun lægra en samrýmist stöðugu verðlagi til skamms tíma. Unnið verður að hækkun gengisins með það að markmiði að verðbólga hjaðni hratt. Nánari tilkynningar um fyrirkomulag gengismála og gengi krónunnar verða veittar á allra næstu dögum," segir Seðlabankinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×