Björgunarafrek á Selfossi 31. janúar 2007 19:03
Björgunarsveitarmenn á Selfossi þykja hafa unnið frækilegt afrek þegar þeir björguðu ungum manni úr bíl sem féll í Ölfusá í gærkvöldi. Gúmbjörgunarbátur þeirra varð vélarlaus úti í miðri á og samtímis því sem þá rak stjórnlaust niður ólgandi flúðir fljótsins með meðvitundarlítinn ökumanninn um borð blésu þeir lífi í hann og hnoðuðu.Það var laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi sem lögreglu barst tilkynning um bílinn. Ökumaðurinn var þá með meðvitund og gat veifað í land þegar björgunarlið kom á vettvang. Vatnshæðin í ánni var þá um hálfum metra hærri en hún var í dag og ís var einnig mun meiri. Vel gekk að ná ökumanni út og um borð í björgunarbátinn en þegar átti að sigla með hann í land drapst á vél bátsins, að því er talið er vegna þess að ís komst í mótorinn. Hægt dró af manninum og hætti hann að anda samtímis því sem bátinn rak niður Ölfusá. Björgunarmönnum tókst hins vegar að blása lífi í hann og hnoða og náðu þeir landi við ketta neðan Selfosskirkju. Ökumaðurinn, nítján ára piltur úr Reykjavík, var fluttur á sjúkrahús til Reykjavíkur og er á batavegi. Oddur Árnason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að björgunarsveitarmenn hafi sett sig í mikla hættu og þeir eigi heiður skilið fyrir sín verk. Í dag hafði sjatnað það mikið í ánni að björgunarsveitarmenn gátu gengið út að bílnum frá landi og komið böndum í hann. Gekk síðan fljótt og vel að hífa hann í land á ný. Þessi atburður vekur hins vegar enn og aftur spurningar um öryggi vegfarenda og telur sýslumaðurinn á Selfossi, Ólafur Helgi Kjartansson, að fátt annað sé unnt að gera en að girða ána af með vegriði. Svona atburðir gerist við óvæntar aðstæður eins og hálku, eins og í gærkvöldi, og því megi búast við að þetta gerist aftur.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Sjá meira