Forseta Úganda umhugað um heilsu Valgerðar 26. febrúar 2007 10:35 Valgerður Sverrisdóttir er nú í vinnuheimsókn í Suður-Afríku.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra lenti í þrumuveðri á bát á Viktoríuvatni í Úganda þar sem hún var á ferð ásamt íslenskri sendinefnd. Forseti Úganda Yoweri Museveni var umhugað um heilsu hennar og hringdi til að spyrjast fyrir um heilsu Valgerðar eftir ferðina. Hópurinn var að koma frá Kalangala eyjum. Þar hafa Íslendingar styrkt byggðaþróunarverkefni auk verkefna á sviði útgerðar og fullorðinsfræðslu. Hún segir á heimasíðu sinni að jaðrað hafi við sjóveiki hjá sumum í bátsferðinni og að henni hafi þótt vænt um nærgætni forsetans. Þess má geta að íslensk stjórnvöld kosta skólamáltíðir 63 þúsund skólabarna í Úganda í samvinnu við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna. Valgerður hafði forgöngu um verkefnið og var hugmyndin að kosta daglega því sem nemur fjölda íslenskra skólabarna, eða um 46 þúsund. Með því að kaupa innlent hráefni tókst að fjölga máltíðunum um 17 þúsund máltíðir daglega í Úganda. Í ferðinni heimsótti Valgerður einnig UNICEF búðir þar sem konur hafa fengið athvarf og atvinnu. Þar voru konur að sauma skólabúninga á fótknúnar saumavélar. Valgerður segir að þá hafi rifjast upp fyrir henni að hún hafi sjálf lært á samskonar saumavél hálfri öld áður og hana hafi dauðlangað að sýna leikni sína, en látið kyrrt liggja. Hópurinn er nú kominn til Pretoríu í Suður-Afríku og mun ferðast til Jóhannesarborgar og Höfðaborgar á næstu dögum.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira