Íslenska vörnin sú sjöunda slakasta í Evrópu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2007 11:00 Íslenska landsliðið sem fékk á sig fjögur mörk um helgina. Mynd/Pjetur
Ísland hefur fengið á sig 21 mark í tíu leikjum til þessa í undankeppni EM 2008. Það er sjöundi slakasti árangur allra liða í keppninni. Ísland tapaði um helgina, 4-2, fyrir Lettlandi og hefur samtals fengið átta lettnesk mörk á sig. Þá ætti 5-0 tap Íslands í Svíþjóð enn að vera mönnum í fersku minni. Meðal þeirra liða sem hafa fengið færri mörk á sig að meðaltali í keppninni eru Hvítarússland, Lúxemborg, Kýpur, Georgía, Moldóva og Kasakstan. Öll liðin sem hafa fengið fleiri mörk á sig að meðaltali í keppninni eru í neðsta styrkleikaflokknum og þekkt sem smálið Evrópu. Ísland var eitt sinn meðal smáliða Evrópu en bættur árangur á undanförnum áratug hefur orðið til þess að önnur lið hafa borið meiri virðingu fyrir Íslandi. Það getur varla verið tilfellið lengur eins og þessi tölfræði ber vitni um. Ísland var í fimmta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla í undankeppni EM 2008. Öll hin liðin í sama flokki hafa fengið færri mörk á sig sem og öll liðin í sjötta styrkleikaflokki. Þau sex lið sem eru með verri vörn en þá íslensku koma öll úr sjöunda og neðsta styrkleikaflokki. Tvö lið í neðsta flokknum, Lúxemborg og Kasakstan, hafa fengið á sig færri mörk en Ísland. Þegar Eyjólfur Sverrisson tók við íslenska landsliðinu var dagsskipunin einföld. Að fá á sig færri mörk. Ísland fékk á sig 27 mörk í tíu leikjum í síðustu keppni. Að því leytinu til hefur Eyjólfur náð sínu markmiði því Ísland hefur nú þegar leikið tíu leiki í þessari undankeppni og fengið á sig 21 mark. Liðið hefur einnig innbyrt átta stig, tvöfalt fleiri en í síðustu undankeppni. Enn á Ísland tvo leiki eftir í riðlinum en fleiri lið eru í riðli Íslands nú en í síðustu undankeppni. Þau lið sem hafa fengið flest mörk á sig í undankeppni EM 2008: 1. San Marínó: 5,00 að meðaltali í leik (50 mörk í 10 leikjum) 2. Færeyjar: 3,50 (35/10) 3. Andorra: 3,27 (36/11) 4. Liechtenstein 2,80 (28/10) 5. Aserbaídsjan 2,11 (19/9) - Malta 2,11 (19/9) 7. Ísland 2,10 (21/10) 8. Hvíta Rússland 2,00 (20/10) - Lúxemborg 2,00 (20/10) - Slóvakía 2,00 (20/10) 11. Eistland 1,91 (21/11) 12. Bosnía 1,90 (19/10)13. Kýpur 1,89 (17/9) 14. Wales 1,78 (16/9)15. Georgía 1,70 (17/10) - Ungverjaland 1,70 (17/10)- Moldóva 1,70 (17/10)18. Kasakstan 1,64 (18/11) 19. Úkraína 1,33 (12/9) 20. Belgía 1,27 (14/11) Skáletruð lið eru í neðri styrkleikaflokki en Ísland.
Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira